Börnin alltaf í fyrsta sæti
KRUMMA var stofnað árið 1986 undir nafninu Barnasmiðjan ehf. af hjónunum Elínu Ágústsdóttur, leikskólakennara og tækniteiknara, og Hrafni Ingimundarsyni vélfræðingi.
Hjónin vildu sjá breytingu í vöruúrvali á leiktækjum og leikföngum á íslenskum markaði og hófu framleiðslu á leiktækjum undir vörumerkinu KRUMMA-GULL.
Árið 1993 hlaut Barnasmiðjan, fyrst íslenskra fyrirtækja, viðurkenninguna „Öryggi barna á okkar ábyrgð“ fyrir markvissa stefnu í framleiðslu á leiktækjum. Meðal þeirra sem stóðu að viðurkenningunni eru Foreldrasamtökin, Landlæknisembættið, Slysavarnafélag Íslands og Umferðarráð. Árið 2001 varð KRUMMA fyrst íslenskra fyrirtækja til að fá vottun samkvæmt evrópska staðlinum EN 1176 fyrir framleiðslu á leikvallatækjum.
Af eigin framleiðslu má nefna hjólagrindur, hjólagrindarskýli, mörk, körfuboltakörfur, bekki og borð ásamt ýmsum gerðum af leiktækjum. Auk þess býður KRUMMA gæða leiktæki, útihúsgögn og öryggisundirlög sem framleidd eru í Evrópu, í samstarfi við leiðandi framleiðendur sem öll eru vottuð samkvæmt EN 1176 og mörg bera Svansvottun.
Mikil áhersla er lögð á opinn leik barna. Plus-Plus kubbar, Kapla kubbar, CollectA dýrin, Rubens Barn dúkkur og Brio lestir eru dæmi um leikföng sem hvetja börnin til að læra og skapa. KRUMMA leggur áherslu á sjálfbærar og endingargóðar vörur til að lágmarka sóun.
- 1986
Barnasmiðjan stofnuð og framleiðsla hefst undir merkinu KRUMMA-GULL.
- 1993
Viðurkenningin „Öryggi barna á okkar ábyrgð“, fyrst íslenskra fyrirtækja.
- 2001
Vottun samkvæmt EN 1176 fyrir framleiðslu leikvallatækja, fyrst íslenskra fyrirtækja.
- Í dag
Leiktæki, skólahúsgögn, kennslugögn, heildsala og leikfangaverslun á Gylfaflöt 7.

Starfsfólk
Á skrifstofu KRUMMA er fagfólk tilbúið til að aðstoða þig.
















Kompan
Norna Playgrounds
Vinci Play
Inter-Play
SPIEL-BAU
Richter Spielgeräte
Eurotramp
Percussion Play
Lars Laj
Sove Swan
ERR öryggishellur
RUBRIG öryggishellur
Kraiburg fallvarnir
Velopark hjólagrindur
Helios
Metalco