Forsíða / Skilmálar
Skilmálar og skilareglur
Skilmálar vefverslunar KRUMMA ehf. og reglur um vöruskil í verslun.
Skilmálar vefverslunar
Almennt
KRUMMA ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef villur í reiknireglum vefverslunar eiga sér stað.
Afhending vöru
Hægt er að fá vöruna í verslun okkar að Gylfaflöt 7 í Grafarvogi; ef varan hefur verið greidd fyrirfram þarf að framvísa greiðslukvittun eða persónuskilríkjum. Velji kaupandi að fá vöruna senda verður hún send með Íslandspósti hf. Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða allar pantanir sem berast fyrir kl. 13 samdægurs, annars næsta virka dag eftir pöntun. Um pantanir sem sendar eru með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts. Sé varan ekki til á lager hefur starfsmaður samband og tilkynnir um áætlaðan afhendingartíma. KRUMMA ehf. ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vörunni við flutning eftir að henni hefur verið komið til Íslandspósts.
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin. Sjá skilareglur hér að neðan.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og allur kostnaður sem kann að koma til vegna flutnings o.fl. er greiddur af KRUMMA ehf.
Netverð
Verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun. Með sama hætti gilda tilboð í verslun KRUMMA ehf. að Gylfaflöt 7 ekki alltaf í vefverslun.
Skattar og gjöld
Öll verð í vefverslun KRUMMA ehf. eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður er reiknaður út frá gjaldskrá Póstsins með tilliti til áfangastaðar og fjölda vara, stærðar þeirra og þyngdar.
Trúnaður og persónuupplýsingar
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Skilareglur
- Þegar skila á vöru skal hafa samband við starfsmann þegar komið er inn í verslunina.
- Við vöruskil þarf að framvísa kassakvittun eða sýna fram á að varan sé með skilamiða.
- Sé vöru skilað innan 14 daga frá dagsetningu kassakvittunar er varan endurgreidd samkvæmt söluverði kassakvittunar.
- Ef meira en 14 dagar eru liðnir frá vörukaupum er gefin út inneignarnóta samkvæmt söluvirði vörunnar á kassakvittun.
- Ef mismunur á verði vöru sem keypt er og inneignarnótu er meiri en 500 kr. er gefin út ný inneignarnóta fyrir eftirstöðvunum.
- Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi, þ.e. umbúðir og vara óskemmd og fylgihlutir og leiðbeiningar með ef um slíkt er að ræða.
- Gjafabréf gilda í 4 ár frá útgáfudegi.
- Inneignarnótur er einungis hægt að nota í verslun KRUMMA ehf. til kaupa á vörum í smásölu. Inneignarnótan gildir í eitt ár frá útgáfudegi gegn framvísun frumrits.
- Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu nema um annað sé sérstaklega samið.
- Sé vara keypt innan 14 daga fyrir upphaf útsölu skal við skil hennar eftir að útsala hefst miða við verð vörunnar á útsölunni nema seljandi samþykki aðra verðviðmiðun. Neytandi á þó ávallt rétt á inneignarnótu miðað við upprunalegt kaupverð.
- Inneignarnótu sem gefin hefur verið út innan 14 daga fyrir útsölu eða meðan útsala stendur er ekki heimilt að nota á útsölunni nema með samþykki seljanda.
- Starfsmönnum er heimilt að neita móttöku skilavöru og endurgreiðslu ef kassakvittun er ekki til staðar.
- Vöruskil á vörum sem keyptar eru í gegnum viðskiptareikning eru kreditfærð á viðkomandi viðskiptareikning.
- Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.